Hátæknilausnir í heilbrigðis- geiranum
HealthCo er dótturfyrirtæki Fastus ehf. sem sérhæfir sig í hátæknilausnum fyrir heilbrigðisgeirann og vinnur m.a. náið með GE HealthCare, einum af stærstu og áreiðanlegustu framleiðendum lækningatækja í heiminum.
Starfsfólk HealthCo býr yfir mikilli þekkingu og reynslu og leggur áherslu á að efla heilbrigðisstarfsfólk með hátæknilausnum og fyrsta flokks þjónustu.